Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Drífa Hrífa
Ekkiland
Friðrik Ágústsson
Hannyrðahornið
Hraunvallaskóli
Háskólinn í Reykjavík
Hólmfríður frænka
Kiddi trommbomm
Kjartan og Lovísa
Norðlingaholtsblogg
Orðabók andskotans
Phooi Ling
Ragnhildur í Danmörku
Rósa Elísabet
Rúnar og María
Siggadís og Einsi
Ásbjörg
Ég er.....
30.06.2009 14:28 - Lilja skrifar
..... loksins búin að skila öllu og komin í sumarfrí!!!

Jibbí!!

Þetta er samt dálítið tómleg tilfinning að vera loksins búin. Nú erum við strákarnir heima að reyna að skemmta okkur þar til Ari Páll fer í frí, og þá leggjum við land undir dekk og förum eitthvað á flakk.

Bless í bili!

Hefur þú eitthvað að segja?? (engin hefur tjáð sig. Vertu fyrst/ur!)


Ýmislegt að frétta....
23.06.2009 21:44 - Lilja skrifar
Jájá.
Það hlaut að koma að því. Nú er búið að "verja" meistaraverkefnið og á bara eftir að fara lauslega yfir það og láta binda það inn - og skila!
Strákarnir eru fyrir löngu komnir í sumarfri (nema Ágúst er látinn lufsast í leikskólann á meðan mamma er að klára...). Þeir hafa bara verið í afslöppun heima og notið þess að geta verið á náttfötunum fram eftir öllu og þurfa ekki að drífa sig af stað í skólann.

Við héldum upp á afmælin þeirra fyrir stuttu, það voru tvö bekkjarpartí og ættingjapartí, allt sama daginn (en allt á sitt hvorum tímanum!). Alberts afmæli var 14. júní (9 ára) en Árni Dagur á afmæli í dag (7 ára). Það var auðvitað mikið fjör en margir farnir í burtu í frí svo að ekki mættu margir. Þeir voru þó hæstánægðir með þetta allt saman.

Um síðustu helgi vorum við svo heppin að fá lánaðan sumarbústað og vorum þar frá föstudegi fram á sunnudag. Við vorum dugleg að leika okkur úti, fara í göngutúra, tína blóm, fara í heita pottinn og borða fullt af góðum mat. Þarna var mikil kyrrð og ró og dásamlegt að vakna við fuglasöng (já stundum um miðja nótt!) og þytinn í trjánum. Ekkert okkar var tilbúið að fara heim á sunnudeginum, en vonandi förum við í einhverja álíka sveitasælu í sumarfrí eftir einhverja daga.

Hér er nú tveimur kettlingum færra og er Snúður okkar vonum ánægður með það. Snjóber (sá hvíti) fór fyrir viku en Lóa litla fór í kvöld. Hún hafði mikinn áhuga á Snúð og elti hann á röndum ef hann var inni. Honum leist nú ekki á það og sló stundum til hennar eða hvæsti á hana. Snúlla (mamman) reiddist þessu nú stundum og réðst á Snúð greyið, en nú eru engir kettlingar lengur "til að spilla sambandinu" svo að það hefur róast hér dálítið. Snúlla var tekin úr sambandi fyrir nokkru svo að þetta verða væntanlega síðustu kettlingarnir sem koma undir á þessu heimili!

Ég var svo heppin að verða okkur úti um notað (og hræódýrt) hjól handa Ágústi sem frænku mína vantaði að losna við. Þetta er fínt hjól með hjálpardekkjum og öllum græjum. Verst að Ágúst á ekki hjálm og eru þeir næstum helmingi dýrari en það sem ég borgaði fyrir hjólið!

Við hjónakornin fórum í sónar fyrir nærri tveimur vikum síðan og fengum að vita að barnið væri stúlka og að hennar væri von þann 26. október. Eldri bræður hennar sýna stækkandi maganum á mömmu sinni mikinn áhuga og þurfa oft að koma við hana og klappa henni dálítið. Þeir hafa líka gaman að lesa um hvernig fóstrið þroskast og stækkar.

Hér er því óhætt að segja að allt sé eins og best verður á kosið. Bestu kveðjur í bili...

Hefur þú eitthvað að segja?? (2 hafa tjáð sig, síðast Lilja)


Myndir
01. október 2006
22. ágúst 2006
17. ágúst 2006
15. ágúst 2006
12. ágúst 2006
08. ágúst 2006
05. ágúst 2006
02. ágúst 2006
08. júní 2006
28. maí 2006
24. maí 2006
18. apríl 2006
14. apríl 2006
24. febrúar 2006
23. janúar 2006
04. janúar 2006
07. júlí 2005